Kökur og eftirréttirMataræðiUppskriftir

Cashewhneturjómi

Engin ástæða að sleppa ,,rjómanum” þrátt fyrir mjólkuróþol. Fékk þessa uppskrift hjá henni Sigrúnu á CafeSigrun.

Þessi rjómi er sniðugur fyrir þá sem þola ekki mjólkurvörur eða soyarjóma en vilja samt gera vel við sig t.d. á tyllidögum. Þetta er mjög hollur rjómi þar sem cashewhnetur innihalda minni fitu en aðrar hnetur. 75% af fitunni í cashewhnetunum eru ómetteðu fitusýrurnar oleic sýrur sem er sama holla einómettaða fitan sem finnst í ólífuolíu. Sýran stuðlar að heilbrigðu hjarta, sérstaklega hjá sykursjúkum. Cashewhnetur innihalda einnig kopar, kalk og fosfór og auðvitað prótein. 
 
Gerir 200 ml 

  • 1,5 bolli cashewhnetur lagðar í bleyti í um 2 tíma
  • 2 döðlur
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1/2 bolli appelsínusafi

Aðferð:

  • Hellið vatninu af cashewhnetunum (vatnið er ekki notað).
  • Blandið öllu saman í matvinnsluvél, blandið mjög vel eða þangað til rjóminn er orðinn mjúkur og flaueliskenndur. Gæti tekið 3-4 mínútur.
  • Setjið í skál og plastfilmu yfir.
  • Kælið rjómann í ísskáp áður en hann er borinn fram. 

Hægt er að nota t.d. heslihnetur eða möndlur í staðinn fyrir cashewhnetur.

Previous post

Jólaís - mjólkur, sykur og eggjalaus

Next post

Heitt salat með hátíðarréttinum

No Comment

Leave a reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *