MataræðiÝmis ráð

Góð ráð við fótasvepp

Algengustu fótasveppir (Tinea pedis) er sýking sem kemur vegna örvera (dermadophyta), en einnig getur fótasveppur verið ein af afleiðingum gersveppasýkingar (candida). Sveppurinn lifir á dauðum húðfrumum, hári og á nöglum.

Fótasveppur er alls ekki hættulegur, en er hvimleiður og getur verið mikið lýti. Oftar en ekki fylgir mikill kláði, sérstaklega á milli tánna. Roði myndast og oft koma útbrot sem að svíða, jafnvel blöðrur. Útbrotin geta síðan orðið þurr, sprungin og byrjað að flagna. Táneglur geta síðan orðið gular, þykkar og aflagaðar.

Sveppurinn þrífst á röku og heitu svæði og hann smitast auðveldlega. Hægt er að smitast af því að ganga á gólfi sem smitaður einstaklingur hefur gengið um áður, t.d. í íþróttasölum eða í sundlaugunum. Eins er hægt að smitast af því að nota sama handklæði og smitaður hefur notað og af fatnaði hans. Hægt er að fá fótasvepp við að vera of mikið og lengi í einu í lokuðum skóm, sérstaklega ef um skó úr gerviefnum er að ræða.

Til þess að komast hjá því að smitast af algengustu fótasveppum þarf að :

Þvo fætur og þurrka, vel og reglulega. Sérstaklega vandlega á milli tánna.

Velja sokka úr náttúrulegum efnum, bómull og ull.

Vera í sundskóm eða sandölum á almenningssundstöðum og -sturtum.

Ef aftur á móti fótasveppur hefur náð að smita fætur eru til náttúrulegar aðferðir sem að vinna á sýkingunni sem t.d. eru:

Hvítlaukur

Hvítlaukur inniheldur sveppadrepandi efni og hafa rannsóknir sýnt að hann gefi góða raun gegn fótasveppum. Skerið hvítlauksgeira í tvennt og nuddið varlega yfir sýkta svæðið daglega. Einnig er hægt að strá hvítlauksdufti í sokkana áður en að farið er í þá.

Mentol

Berið mentoláburð á fæturna. Fara skal varlega ef að blöðrur hafa myndast eða mikill roði, sviði er til staðar og svæði viðkvæmt.

Kjarnaolíur

Tea Tree olía, Appelsínuolía, Fennelolía, Piparmyntuolía, Blóðbergsolía, Einisolía og Blágúmmítrésolía geta allar hjálpað til að komast fyrir fótasveppasýkingu.

Ef að vel er hugsað um fæturna, gott hreinlæti er ávallt viðhaft og ofangefin atriði höfð í huga, dregur verulega úr áhættunni að þurfa að eiga við hvimleiðan og illa útlítandi fótasvepp.

Previous post

Fótaóeirð

Next post

Fréttatilkynning lyfjafyrirtækis um bóluefni

No Comment

Leave a reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *