FjölskyldanHeimiliðMataræðiSjálfsrækt

Litlu atriðin og aukakílóin

Litlu hlutirnir í lífinu geta gert svo mikið fyrir okkur. Stundum þurfum við að leita að þeim, en þeir eru þarna. Oft er það pínulítil breyting sem að við þurfum að gera til að láta okkur líða miklu betur. Stundum er nóg að fara úr svörtu peysunni og fara í þá gulu eða appelsínugulu. Bjartari litir lífga upp tilveruna í kringum okkur og líka okkur sjálf. Blóm í vasa í stofunni eða á eldhúsborðinu geta breytt andrúmsloftinu á heimilinu og hressileg tónlist ekki síður. Það eina sem þarf fyrir litlu hlutina er jákvæðni, bjartsýni og ákveðni um að finna þá.

Oft er erfitt, fyrir þá sem að eru að stríða við aukakílóin að sjá litlu hlutina sem að hægt er að gera til að missa nokkur. Best er að breyta til í litlum skrefum, annars er hætta á að þau komi strax aftur og þá oftar en ekki með nokkrum til viðbótar. Litlu atriðin eru einmitt það sem að hægt er að skoða í fari okkar sjálfra og grömmin gætu við það farið að fjúka og svo kílóin. Byrjum á því að sætta okkur við það sem að við erum núna og hvernig við erum núna. Svo setjum við okkur markmið, lítil í einu. Tökum ákvörðun um að við ætlum að breyta nokkrum litlum atriðum í okkar fari. Byrjum á, að reyna að hugsa jákvætt, vera bjartsýn og jafnframt ákveðin í að standa okkur í litlu atriðunum sem að við höfum ákveðið að breyta.

Byrjum á því að ákveða að tyggja matinn okkar. Mun oftar og betur, en við höfum nokkurn tímann áður gert. Hvern bita minnst 15-20 sinnum. Þannig náum við mun betur að nýta næringarefnin úr fæðunni og líkaminn hefur meiri tíma til að finna út og gefa okkur merki, þegar við erum að verða södd.

Síðan skal huga að því að krydda aðeins það sem sett er á diskinn eða í skálina. Salat getur t.d. orðið leiðinlegt til lengdar, en auðvelt er að gera það aðeins meira spennandi með því að bæta útí litríku grænmeti og vera dugleg að breyta til um tegundir. Um að gera að skemmta sér við að setja saman liti í skálina. Einnig að setja mismunandi fræ og hnetur útí. Krydda svo með ferskum kryddjurtum og vera dugleg að prófa nýjar tegundir. Eins er með ávextina, niðurskorna eplið er mun meira spennandi ef að það er kryddað með kanil eða engifer.

Fá sér skemmtilegan bolla eða litríka flösku undir vatnið, sem skal alltaf vera við hendina og drekka skal úr allan daginn, alla daga. Jafnvel enn skemmtilegra að fá sér 2-3 bolla til skiptana. Vatnið hjálpar líkamanum á alla vegu og er algjörlega nauðsynlegt öllum, alltaf! Fá sér svo alltaf fullt glas af vatni um leið og vaknað er á morgnana og líka fyrir hverja máltíð, sem að getur hjálpað mikið til við að ekki sé boðað of mikið.

Búa skal til plan um hvað á að borða, setja það niður á blað og endilega skreyta blaðið með skemmtilegum litum og teikningum. Reyna að halda sér við það plan eins vel og mögulegt er. Hér kemur ákveðnin svo sannarlega sterkt inn. Ef að ætlunin er að missa kíló þá er best að reyna að halda reglu, bæði um skammtastærð og eins hve langt er á milli mála. Flestum reynist best að borða oft og minna í einu.

Heiðarleikinn við sjálfan sig er svo annað atriði þar sem að ákveðnin er stór þáttur. Flest okkar, segjum að við borðum minna en við gerum, þ.e. í kaloríum talið, og að við æfum meira en við gerum. Þarna getur skeikað upp undir 25% á báðum þáttum. Þessi tala er 100% á fjórum dögum….. Best er að halda dagbók yfir báða þessa þætti og skrifa allt niður. Heiðaleikinn er bestur, ekki svindla.

Breyting á gönguhraða og leið, aðeins meiri hraði þegar að gengið er og smálykkja á leiðina sem að alltaf er farin, hjálpar mikið til. Labba upp og niður stigann í stað þess að taka lyftuna. Lítil breyting, en getur orðið mikil á vigtinni.

Hafa í huga að það þarf ekki að klára allt það sem í boði er og reyna að útbúa ekki of mikið. Afganga má líka geyma til næstu máltíðar, frysta þar til síðar eða hreinlega að nota tunnuna, frekar en að vera sjálfur tunnan.

Til að ná þeim markmiðum sem að við settum okkur, þurfum við alltaf að horfa fram á veginn. Enda er það svo miklu skemmtilegra að sjá það sem framundan er, frekar en að vera alltaf í sömu sporunum, hvað þá að fara aftur á bak. Lífið er svo skemmtilegt, ef að við bara viljum prófa að halda áfram, lítil skref í einu.

Aldrei skal segja ALDREI, segja frekar kannski og prófa. Með bjartsýni og jákvæðni er hægt að láta sér líða svo miklu betur og líka missa kíló. Tölum við okkur sjálf, segjum okkur hvað við ætlum að gera og trúum því að það takist. Það er ekki bara það að “Við erum það sem við borðum”, heldur ekki síður “Við erum það sem við hugsum”.

Ímyndum okkur á hverjum einasta morgni, um leið og við förum í fötin okkar að við setjum heita, fallega, sterkgula sól inní brjóstkassann. Við þessa ímyndun fyllumst við gleði og hita, sem er góð byrjun á köldum vetrardegi. Þannig getum við líka vonandi brætt eitthvað af níðþungu ísklumpunum, sem að alltof mörg okkar burðast með yfir daginn. Réttum svo úr okkur og leyfum síðustu krapmolunum að detta og bjóðum brosandi góðan dag. Er hægt að byrja daginn betur?

 

Höfundur: Guðný Ósk Diðriksdóttir

Previous post

Hamingjan - Hér og Nú

Next post

Heildræn nálgun að betra lífi - segjum skyndilausnum stríð á hendur

No Comment

Leave a reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *