JólKökur og eftirréttirUppskriftir

Súkkulaðibitakökur í hollari kantinum :)

Systir mín var að dunda sér við að breyta uppáhalds jólasmákökum okkur systkinanna yfir í hollari áherslur og ég get ekki beðið eftir að prófa

  • 1/2 bolli smjör (ca. 100 g)
  • 3/4 bolli Agave-sýróp (eða eitthvað annað sýróp)
  • 1/4 bolli Xylitol
  • 1 stk. egg
  • 1 bolli heilhveiti
  • 1/2 bolli spelt
  • 1/2 tsk natron (matarsódi)
  • 1/4 tsk salt
  • tæpl. 1 bolli kókosmjöl
  • 200 g 70% súkkulaði (brytjað smátt)
  • (ef þið viljið er hægt að bæta 1/2 – 1 tsk. af vanilludropum)

Aðferð:

Smjörið hrært lint, sætuefnum blandað í, hrært vel og eggið hrært með á eftir.

Mjöli, natroni, salti og kókosmjöli sáldrað út í og súkkulaði bætt við að lokum.

Hnoðið litlar kúlur úr deiginu, og þrýstið svo lítillega á með fingrunum (deigið rennur ekki mikið út við bakstur).

Bakað við meðalhita (175°-180°) í 10 – 12 mín.

Vona að þið njótið vel 🙂   Gleðileg jól !  Binna.

Previous post

Heitt salat með hátíðarréttinum

Next post

Heit epli með kanil og salthnetum

No Comment

Leave a reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *