|
Líkamsþyngd og hjartasjúkdómar |
|
New York Times sagði nýlega frá rannsókn sem skoðaði tengsl líkamsþyngdar og áhættu á hjartasjúkdómum og var fyrirsögnin að það væri betra að vera feitur og í góðu formi heldur en að vera grannur og í engu formi.
En spurningin er frekar þessi: Er þyngdin marktækur mælikvarði á heilbrigði?
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Það hefur lengi verið deilt um hversu mikið vatn við þurfum að drekka - algengast er að talað sé um tvo lítra á dag, aðrir segja að við fáum allan þann vökva sem við þurfum úr mat og öðrum drykk.
Dr. Fereydoon Batmanghelidj (Dr. B) helgaði líf sitt rannsóknum og skrifum um heilunarmátt vatns og taldi hann að vatnsskortur væri undirstaða flestra sjúkdóma og kvilla sem hrjá okkur í nútímasamfélagi. Meðal þeirra bóka sem hann gaf út eru: Your body´s many cries for water; Water for Health, For Healing, For Life; Water cures, drugs kill og síðasta bókin sem hann gaf út áður en hann lést árið 2004 heitir Obesity, Cancer, Depression.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Tennurnar eru eitt af því sem hefur mikil áhrif á útlit okkar og líðan. Heilbrigðar og fallegar tennur gera okkur aðlaðandi en illa hirtar og skemmdar tennur hafa þveröfug áhrif. Tannverkur og blæðandi tannhold valda hugarangri og vanlíðan. Það er því mikilvægt að hugsa vel um tennurnar og bursta þær vel og reglulega því þær þurfa að endast okkur ævina.
Gos eyðir glerungnum. Gosdrykkir og aðrir kolsýrðir drykkir hafa skaðleg áhrif á tennurnar því kolsýran eyðir upp glerungi tannanna. Þetta á ekki eingöngu við um sæta drykki. Þeir gosdrykkir sem fara verst með glerunginn eru með sítrus bragðefnum (appelsínu, sítrónu og lime) og að sjálfsögðu sykri. Hjálplegt er að bursta tennurnar eftir neyslu kolsýrðra drykkja.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
"Það er fátt sem rýrir lífsgæði eins mikið á efri árum og beinþynning. Áætlað er að árlega megi rekja a.m.k. 1.300 beinbrot hjá einstaklingum til hennar. Beinbrot af völdum beinþynningar eru mun algengari meðal kvenna en karla og telja sumir sérfræðingar að önnur hver kona um fimmtugt megi gera ráð fyrir því að hún beinbrotni síðar á lífsleiðinni og fimmti hver karl."
Þetta kemur fram í nýjasta fréttabréfi Beinverndar, en það eru samtök sem hafa unnið að því markmiði síðustu 11 ár að fræða almenning, heilbrigðisstarfsfólk og stjórnvöld um sjúkdóminn beinþynningu.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Magaspik og hrörnun hugans |
|
Nýlegar rannsóknir hafa sýnt fram á, að þeir sem eru með mikla fitusöfnun á maganum eru talsvert líklegir til að þjást af sykursýki, hjartasjúkdómum og vitglöpum eins og Alzheimer, síðar á lífsleiðinni.
Fólk er misjafnlega vaxið. Sumir safna fitu á rass og læri, aðrir jafnt um líkamann og enn aðrir á magann. Síðastnefndi hópurinn er í áhættu á að þjást af ofangreindum sjúkdómum. Oft er talað um að þeir sem safna fitu fyrst og fremst á magann séu í laginu eins og epli en þeir sem safna fitu á rass og læri séu perulaga.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 9 af 150 |