|
Áhrif örbylgjuhitunar á mat |
|
Mikið hefur verið skeggrætt um áhrif örbylgjuofna í matargerð síðustu ár og áratugi. Sumum finnst örbylgjuofninn hið mesta þarfaþing og nota hann við hverja matseld. Aðrir vilja ekki sjá hann, finnst maturinn slepjulegur og óspennandi eftir örbylgjuhitunina.
Ljóst er að matur missir nokkuð af næringargildi sínu við hitun, einhver ensím brotna niður, ýmis konar efnasambönd breytast og hann verður snauðari af vítamínum. Talsvert hefur verið fjallað um að næringargildið minnki enn meira við örbylgjuhitun en venjulega eldun. Engar afgerandi sannanir liggja þó þar að baki og erfitt er að fullyrða að svo sé, en hins vegar er fjöldi rannsókna sem bendir til slíks.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Nú er jörð að grænka, fuglar farnir að tísta og flugur að suða. Það eru þó ekki allir mjög ánægðir með suð flugnanna, sérstaklega ekki inni í íbúðarhúsum. Mikill óþrifnaður getur einnig verið af þeim og geta húsflugur borið með sér bakteríur og annan óáran.
Ef flugur eru vandamál á þínu heimili geturðu prófað þessi ómengandi og umhverfisvænu ráð.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skaðleg efni í "náttúrulegum" snyrtivörum |
|
Nýleg rannsókn hefur sýnt fram á að sumar "lífrænar" og "náttúrulegar" snyrtivörur innihalda efnið 1,4-Dioxane sem er bæði mengandi og krabbameinsvaldandi. Þetta efni hefur eituráhrif á nýru, taugakerfi, öndunarfæri og er mengunarvaldur í grunnvatni.
Efnið hefur fundist í snyrtivörum eins og sjampói, sturtusápu og kremum frá fjölmörgum framleiðendum og m.a. í "náttúruvörum". Vísbending um að efnið sé í vörunum er þegar innihaldslýsingin kveður á um "myreth", "oleth", "laureth", "ceteareth", eða með endinguna -eth auk orðanna "PEG", "polyethylene", "polyethylene glycol", "polyoxyethylene" og "oxynol".
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Úrval potta og panna er stöðugt að aukast og framboðið er gríðarlegt. Verðin hlaupa frá nokkrum þúsundköllum í hundruðir þúsunda. Mikið er um teflonhúðaða potta, potta úr ryðfríu stáli og svo hinu svokallaða skurðlæknastáli. Álpottarnir virðast vera að hverfa af markaði en eitthvað er til af glerhúðuðum járnpottum.
Álpottar voru mikið notaðir á árum áður. Hins vegar kom í ljós að álið tærist auðveldlega og fer út í matvælin sem við síðan neytum. Tengsl eru á milli álneyslu og Alzheimer sjúkdómsins, en álið getur safnast fyrir í vefjum taugakerfisins og heilans.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Nokkur náttúruleg ráð fyrir húðina |
|
Húðin er stærsta líffærið okkar og það sýnilegasta. Hún gegnir fjölmörgum hlutverkum eins og að verja líffæri gegn meiðslum og sýkingum. Hún ver okkur fyrir sólbruna, ofþornun og hitabreytingum. Hún framleiðir D vítamín og gefur okkur kost á að skynja áferð umhverfisins, hart, mjúkt o.s.frv.
Í húðsnyrtivörum eru yfirleitt fjölmörg tilbúin efni sem eiga að gera kraftaverk fyrir húðina. Virkni þeirra er misjöfn og sumir eru fullir efasemda um að smyrja slíkum efnum á sig. Á pakkningunum eru jafnvel varúðarorð um skaðsemi efnanna séu þau notuð í óhófi eða þau innbyrgð. Sumir setja því spurningarmerki við hvort heilbrigt sé að nudda þeim á húðina, því auðvitað fara efnin smám saman inn í líkamann og geta þau safnast þar upp með slæmum afleiðingum.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 9 af 24 |