Heilsubankinn Hreyfing
ForsíðaMataræðiHreyfingHeimiliðUmhverfiðMeðferðir
 
Meðferðaraðili
Viðar Aðalsteinsson
Dáleiðsla, EFT, Orkujöfnun
Póstnúmer: 110
 
Meðferðar- og þjónustuaðilar

Heilsubankinn er vefur um allt er viðkemur heilsu okkar og lífsháttum. Honum er ætlað að stuðla að aukinni meðvitund um holla lífshætti og um leið er honum ætlað að vera hvatning fyrir fólk til að taka aukna ábyrgð á eigin lífi og heilsu.

Vefurinn er rekinn sem fréttamiðill, auk þess sem hann er gagnabanki yfir aðila sem bjóða þjónustu er fellur að áherslum Heilsubankans.

Við hvetjum þig til að skrá þig á póstlista Heilsubankans (hér) og sendum við þér þá fréttabréfið okkar í tölvupósti ca. tvisvar sinnum í mánuði. Þar koma fram punktar yfir það helsta sem hefur birst á síðum Heilsubankans, auk tilboða sem eru í boði fyrir handhafa Heilsukortsins.

Við bjóðum þig velkomin(n) inn á vefinn og hlökkum til að sjá þig hér sem oftast.

Dans

Þegar við hugsum um líkamsrækt dettur okkur ekki endilega dans í hug. En dans getur verið góð líkamsrækt.

Mismunandi dansaðferðir reyna mismikið á líkamann en allur dans er af hinu góða þar sem hann eykur blóðrennsli um líkamann auk þess sem hann færir okkur gleði í sálina.

Dans er góð líkamshreyfing fyrir börn þar sem hann vinnur með samhæfingu hreyfinga. Einnig er hann góður fyrir félagsþroska barna.

Margir aðilar bjóða upp á danskennslu og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem um einstakling eða pör er að ræða. Einnig eru til félög og hópar sem hafa það eitt að markmiði að koma saman til að dansa.




Til baka
Fræðsluskjóðan
 
Greinar Pistill dagsins Viðtöl Fréttir
Reynslusögur Uppskriftir Fyrirspurnir og ábendingar Vandamál og úrræði
Skráning á þjónustu- og meðferðarsíður

© 2006 Heilsubankinn - Allur réttur áskilinn