GrænmetisréttirUppskriftir

Geitaosta pítsa

Pítsusósa:

  • ½ glas tómatsúpa frá LaSelva
  • ½ glas Salsa Pronta frá LaSelva
  • 3 msk lífrænt tómatpúrré*
  • 1-2 hvítlauksrif – pressuð
  • 1-2 tsk þurrkað oregano
  • 1-2 tsk þurrkað basil
  • 1-2 tsk þurrkað timian
  • ½ tsk sjávarsalt & 1/4 tsk nýmalaður svartur pipar

Allt sett í skál og hrært saman

  • 2 pk kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
  • 2 rúllur geitaostur (fást í stórmörkuðunum)

Smyrjið tómatsósunni á pítsabotnana, raðið síðan kirsuberjatómötunum þar ofaná ásamt geitaostinum sem er gott að klípa í litla bita.

Bakið við 200°c í um 7-10 mín.

*fæst lífrænt frá Himneskri Hollustu

Uppskrift: Sólveig Eiríksdóttir

Previous post

Græn pítsa

Next post

Rauðrófupottréttur

No Comment

Leave a reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *