BlómadroparáðgjöfMeðferðir

FES blómadropar

Loksins á Íslandi – Flower Essence Services

Nýlega hóf Heilsustofan Nýjaland ehf. innflutning á FES blómadropum og líkamsolíum.

Flower Essence Services er mjög virt fyrirtæki og þekkt fyrir gæði og framúrskarandi árangur á alþjóðavísu í yfir 25 ár. Í dag eru FES vörunar notaðar í yfir 50 löndum, af hundrað þúsund sérfræðingum í heilbrigðisstéttinni. Blómadroparnir eru gerðir úr lífrænum og villtum blómum, sem vaxa við fjallsrætur Sierra Nevada í Kaliforníu. DEMETER samtökin hafa gefið FESblómadropunum sinn gæðastimpil sem lífelfd (BYODYNAMIC) vara.

DEMETER stimpillinn er hæsti mögulegi gæðastimpill sem hægt er að fá á alþjóðamarkaði vistfræðilegs landbúnaðar og náttúrulegs varnings.

Hvað eru blómadropar?

Það má segja að blómadropar tilheyri nýrri grein lækninga sem öðlast krafta sína frá lífskröftum blóma og jurta. Blómadropar bera með sér krafta og eiginleika hvers og eins blóms eða plöntu og innihalda lítið magn af efni og eru þess vegna ekki flokkaðir  sem lífefnafræðilegt lyf. Þeir eru fullkomlega öryggir, náttúrulegir og framleiddir við bestu hugsanlegu aðstæður af alúð, kærleika og vandvirkni.

Blómadropar raska ekki öðrum hefðbundnum lækningum og þeir koma ekki í staðinn fyrir þær. Hver sem þarfnast hjálpar má nota blómadropa frá 0 – 99 ára.

Hvaða árangri nærðu með blómadropanotkun?

Blómadropar eru ekki undralyf sem er allra meina bót, heldur auka þeir getuna til að takast á við áskoranir eða erfiðleika lífsins og vinna úr þeim.

Breytingar sem geta t.d. verið; betri svefn, enginn kvíði, meiri árangur í vinnunni og námi, aukin og betri samskipti og tjáning, bætt sjálfsmynd, dýpra innsæi og vitund, hugrekki og trú, ákveðni og markmið, kyrrð og samkennd með lífinu, losun við fíkn o.fl.

Nýjaland ehf. er heilsustofa og verslun á Eiðistorgi.

Previous post

Hvað felst í hómópatía?

Next post

Blómadropar

No Comment

Leave a reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *