GrænmetisréttirUppskriftir

Dahlbollur

  • 2 dl soðnar rauðar linsur
  • 1 dl rifnar gulrætur
  • 1 dl rifin sellerírót
  • 1 dl malaðar kasjúhnetur
  • 1 búnt ferskur kóríander, smátt saxaður
  • 2 msk mangó chutney (þitt uppáhalds)
  • 2 tsk karrýduft (t.d. það lífræna frá Herbaria)
  • 1 tsk ger-, msg-, glútenlaus grænmetiskraftur*
  • ½ tsk himalaya/sjávarsalt
  • smá cayenne pipar ef vill

 

Hitið ofninn í 200°C, allt er sett í hrærivél og hrært saman.

Síðan notið þið ískúluskeið (með sjálfvirkum sleppara) til að móta bollurnar, sem þið setjið í á bökunarplötu.

Bakið í ofninum við 200°C í um 15 mín eða þar til þær eru orðna gylltar og stökkar á yfirborðinu

*fæst frá Himneskri hollustu

Uppskrift: Sólveig Eiríksdóttir

Previous post

Hrísgrjóna-karríbuff

Next post

Kasjúkarrí, fyrir 4-6 persónur

No Comment

Leave a reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *