|
Við höfum sagt frá því hér áður að í spergilkáli er sérstaklega mikið af andoxunarefni sem kallast sulforaphane. Þetta efni stuðlar að aukningu ensíma sem hjálpa líkamanum að losna við carcinogens sem eru krabbameinsvaldandi efni. Það í raun drepur óeðlilegar frumur og dregur einnig úr oxun í líkamanum.
Rannsókn sem var framkvæmd í Johns Hopkins háskólanum í Bandaríkjunum sýndi að sulforaphane dró úr líkum á því að krabbameinsæxli mynduðust hjá um 60% rannsóknarhópsins og það jafnframt minnkaði stærð þeirra æxla sem þó mynduðust um 75%.
Vísindamenn hafa uppgötvað að spíruð spergilkálsfræ innihalda 30 til 50 sinnum meira af sulforaphane heldur en venjulegt spergilkál.
Það er því um að gera að bæta spíruðum spergilkálsfræjum í mataræðið til að styrkja ónæmiskerfið og svo er um að gera að halda áfram að borða fullt af spergilkáli - það er algjör ofurfæða.
|