Heilsubankinn Mataræði
ForsíðaMataræðiHreyfingHeimiliðUmhverfiðMeðferðir
 
Hollusta eldisfisks? Prenta Rafpóstur

Mbl.is sagði frá því nú um daginn að mun minna væri af Omega3 fitusýrum í eldisfiski en í villtum fiski.

Þetta stafar af því að eldisfiskurinn er fóðraður á ódýrari hátt en best væri. Eldisfiskurinn er nú aðallega fóðraður með sojaprótíni og jurtaolíu í stað lýsis sem sé of dýrt.

Rannsóknir Charlotte Jacobesen við danska tækniháskólann í Kaupmannahöfn, leiddi þetta í ljós. Vill hún meina að tími sé kominn til að endurskoða ráðgjöf dönsku Matvælastofnunarinnar um að fólk eigi að borða fisk tvisvar í viku.

Nú er það sem betur fer þannig hjá okkur Íslendingum að mest af því fiskmeti sem við neytum er af villtum fiski. Hins vegar er mikið af laxi sem fæst í búðum eldisfiskur og sérstaklega er mælt með að fólk borði lax einmitt vegna þess hve ríkur hann er af Omega3 fitusýrum. Það væri ástæða til að kanna ástand þessara mála hér á landi.

  Til baka Prenta Senda þetta á vin
 
Greinar Pistill dagsins Viðtöl Fréttir
Reynslusögur Uppskriftir Fyrirspurnir og ábendingar Vandamál og úrræði
Skráning á þjónustu- og meðferðarsíður

© 2006 Heilsubankinn - Allur réttur áskilinn