HeimiliðSamfélagið

Dæmisaga

Mér hefur verið tíðrætt um þann asa sem einkennir samfélagið okkar og ég er sjálf stöðugt að vinna að því að einfalda líf mitt til að ég geti á sem bestan hátt notið hvers dags og þess sem hann hefur upp á að bjóða.

Ég fann þessa skemmtilegu dæmisögu á bloggsíðunni hans Júlla Júl., þess mæta atorkumanns með stóra hjartað og ætla ég að leyfa mér að skella henni hér inn svo þið megið njóta líka.

Sagt er að Bandaríkjamaður einn hafi verið staddur við höfnina í litlu sjávarþorpi í Mexíkó. Hann sá lítinn bát koma inn höfnina og var einn maður um borð með mikinn og vænan túnfisk. Bandaríkjamaðurinn spurði fiskimanninn hve lengi hann hefði verið að veiða þetta. Smástund, var svarið.

Af hverju veiddir þú ekki meira?  Ég hef ekkert að gera við meira, sagði fiskimaðurinn, þetta nægir fjölskyldunni minni vel.  Hvað gerir þú þá við tímann?  Ég lifi góðu lífi, sagði fiskimaðurinn. Ég sef frameftir á morgnana, fiska dálítið, leik mér við börnin mín, tek “siesta” með konunni, rölti niður í þorpið á kvöldin og fæ mér vínglas og leik á gítar með vinum mínum. 

Ég get gefið þér góð ráð sagði Bandaríkjamaðurinn. Ég er með MBA próf frá Harvard skóla. Þú átt að veiða meira. Þá færð þú meiri afla og getur keypt þér stærri bát og þá veiðir þú enn meira. Síðan getur þú keypt heilan flota af bátum og þá ertu ekki lengur háður því að selja í gegnum milliliði en getur verslað beint við verksmiðjurnar, sett sjálfur upp verksmiðjur og jafnvel ráðið markaðnum. Þá getur þú ekki lengur búið hér en flytur til stórborgar eins og td. New York. 

Hvað tekur þetta langan tíma? spurði fiskimaðurinn. Svona 20-25 ár. En hvað svo? spurði fiskimaðurinn.- Þá kemur stóra stundin, sjáðu til. Þú breytir fyrirtækinu í hlutafélag og ferð á verðbréfamarkað og selur og stendur uppi með margar millj.dollara.- Já, sagði fiskimaðurinn en hvað svo? 

Bandaríkjamaðurinn varð dálítið hugsi en sagði síðan: Þá flytur þú í lítið fiskiþorp,  sefur frameftir á morgnana, fiskar dálítið, leikur við börnin, tekur “siesta” með konunni, röltir á kvöldin niður í þorpið og færð þér vínglas og leikur á gítar með vinum þínum.!!!

Previous post

Vítamín og steinefni

Next post

Tölvupóstur er tímaþjófur

No Comment

Leave a reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *