Heilsubankinn Heilsubankinn
Heilsukortið
ForsíðaMataræðiHreyfingHeimiliðUmhverfiðMeðferðir
 
Spjallsvæðið
Á döfinni
Hnetu og ávaxtastykki

Ég tel að það sé algengast að fólk freistist til að fá sér óhollustuna þegar það er á þönum og vantar eitthvað til að grípa í. Inga sendi okkur þessa flottu uppskrift og það er um að gera að útbúa í frystinn og grípa með sér áður en haldið er til vinnu að morgni eða til að eiga heima þegar sætindalöngunin hellist yfir.

1 stór gulrót
1 stórt epli
Lesa meira...
 
Veikindi eða þorsti?

Það hefur lengi verið deilt um hversu mikið vatn við þurfum að drekka - algengast er að talað sé um tvo lítra á dag, aðrir segja að við fáum allan þann vökva sem við þurfum úr mat og öðrum drykk.

Dr. Fereydoon Batmanghelidj (Dr. B) helgaði líf sitt rannsóknum og skrifum um heilunarmátt vatns og taldi hann að vatnsskortur væri undirstaða flestra sjúkdóma og kvilla sem hrjá okkur í nútímasamfélagi. Meðal þeirra bóka sem hann gaf út eru: Your body´s many cries for water; Water for Health, For Healing, For Life; Water cures, drugs kill og síðasta bókin sem hann gaf út áður en hann lést árið 2004 heitir Obesity, Cancer, Depression.

Lesa meira...
 
Hægfara bati eftir bílslys

Reynslusaga Hildar M. Jónsdóttur 

Það er eitt sem er öruggt í lífinu, við vitum að alheimurinn skaffar okkur nóg af verkefnum til að takast á við og leysa, svo að við getum vaxið og þroskast.

Þar til fyrir nokkrum árum taldi ég mig geta leyst öll þau mál sem almættið setti fyrir mig, það væri bara spurning um að finna rétta lykilinn og snúa honum í skránni.

Lesa meira...
 
Súr-sætt salat með avókadó, eplum og döðlum.

Hér kemur uppskrift af ótrúlega ljúffengu salati sem ég bjó til í gær. Það á ekki við alla að blanda svona saman grænmeti og ávöxtum, en þetta er svona algjörlega spari hjá mér, nammmm.....

100 gr. grænt salat
1 avókadó
Lesa meira...
 
Magnesíum

Magnesíum er lífsnauðsynlegur efnahvati í virkni ensíma, sérstaklega þeirra sem vinna að orkuframleiðslu. Það hjálpar líka til við upptöku kalks og kalíums. Skortur á magnesíum hefur áhrif á flutning tauga- og vöðvaboða, veldur depurð og taugaveiklun.

Sé magnesíum bætt við mataræði getur það unnið gegn þunglyndi, svima, slappleika í vöðvum, vöðvakippum og fyrirtíðarspennu. Auk þess sem það hjálpar til við að viðhalda eðlilegu sýrustigi líkamans og líkamshita.

Lesa meira...
 
LÍF ÁN EINELTIS

Ég fékk þetta bréf sent í tölvupósti og ákvað að setja það inn hér á Heilsubankann. Það er frá móðurinni sem missti drenginn sinn fyrir eigin hendi, eftir langt stríð við þunglyndi sem orsakaðist af erfiðri reynslu af einelti í grunnskóla. Þessi duglega og kjarkmikla kona er að leita að fólki sem vill koma og starfa með henni í stuðningssamtökum fyrir foreldra eineltisbarna. 

LÍF ÁN EINELTIS

STOFNUM SAMTÖK FORELDRA EINELTISBARNA

Ég skrifa til þín í þeirri von um að fá hjálp, leiðsögn, hugmyndir og sem flest sjónarmið og stuðning til að gera draum að veruleika. Að styðja eineltisforvarnir með því að stíga fram og lýsa yfir stuðningi við stofnun eineltissamtaka, samtaka foreldra eineltisbarna.

Lesa meira...
 
Góð leið til að geyma kryddjurtir

Nú er farið að hausta og kryddjurtirnar í garðinum fara að láta á sjá. Góð leið til að geyma uppskeruna er annað hvort að þurrka hana eða frysta.

Besta leiðin við þurrkun er að binda stönglana saman í knippi og hengja upp öfuga á hlýjum og þurrum stað.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Endir >>

Úrslit 17 - 24 af 33
Kannanir
Hefur þú breytt neysluvenjum þínum eftir að kreppan skall á?
 
Hver er að skoða?
Það eru 18 gestir á vefsvæðinu
 
Greinar Pistill dagsins Viðtöl Fréttir
Reynslusögur Uppskriftir Fyrirspurnir og ábendingar Vandamál og úrræði
Skráning á þjónustu- og meðferðarsíður

© 2006 Heilsubankinn - Allur réttur áskilinn