Heilsubankinn Heilsubankinn
Heilsukortið
ForsíðaMataræðiHreyfingHeimiliðUmhverfiðMeðferðir
 
Spjallsvæðið
Á döfinni
Að tala frammi fyrir hópi fólks

Mörgum finnst algjör pína að standa upp og tala fyrir framan hóp fólks. Þeir leggja sig í líma við að komast hjá slíkri aðstöðu, bjóða sig ekki fram til að vinna að málefnum, taka þátt í nefndum, segja ekki álit sitt eða annað vegna hættu á að þurfa að tala opinberlega.

Svo eru einstaklingar sem finnst hreinlega ekkert mál að tala frammi fyrir öðrum. Reynslan gerir fólk öruggara á slíkum vettvangi og víst er að æfingin hjálpar mikið til.

 

Lesa meira...
 
Mígreni og ofnæmi

María sendi okkur eftirfarandi fyrirspurn:

Sæl. Ég vona svo sannarlega að þið getið eitthvað leiðbeint mér.
Ég þjáist stöðugt af mígreni, spennu í vöðvum og flestum þeim einkennum sem fylgja gersveppaóþoli. Það virðist þó ekki skýra öll mín einkenni því upp á síðkastið er ég farin að fá slæm einkenni ofnæmis af sól, fæ sömu einkenni af flugnabiti, virðist fá mígreni af sól, lofleysi og roki auk þess sem ég fékk mígrenikast af að borða smá Gulrótarbrauð úr Grímsbæ (hollustubrauð).

Lesa meira...
 
B12 vítamín (Kóbalamín)

B12 vítamínið vinnur á móti blóðskorti. Það vinnur með fólinsýru við stjórnun á myndun rauðra blóðkorna og gegnir hlutverki í því hvernig við nýtum járn. B12 vítamínið hjálpar til við meltingu, upptöku á næringarefnum, nýtingu próteina og meltingu kolvetna og fitu.

B12 viðheldur heilbrigði húðarinnar, vinnur að viðhaldi og uppbyggingu taugakerfisins og að viðhaldi og uppbyggingu frumna líkamans almennt.

Lesa meira...
 
Getum við dregið úr plastnotkun?

Notkun plastefna eykst í sífellu og sjálfsagt geta fæstir ímyndað sér veröldina án plasts. En plastinu fylgja stór vandamál. Fyrir utan það að sumar plasttegundir geta smitað eiturefnum í fæðu eins og áður hefur verið fjallað um á Heilsubankanum, safnast ómælt magn af plasti upp í náttúrunni og brotnar ekki niður. Hægt er að endurnýta plast, en aðeins lítið brot af því skilar sér inn á endurvinnslustöðvarnar.

Mikið af plastinu fýkur út á haf og er Kyrrahafinu gjarnan líkt við stóran plastgraut. Sem dæmi má nefna að þar er massi plasts 6 sinnum meiri en massi svifa. Í norðurhluta Kyrrahafsins er talið að plastefni og plasthlutir verði yfir milljón sjófuglum, um 100.000 sjávarspendýrum og enn fleiri fiskum að bana ár hvert.

Lesa meira...
 
Rauðrófusalat með geitaosti

Hér kemur girnileg uppskrift af salati frá henni Ingu næringarþerapista. Það hæfir vel að fara að létta mataræðið með hækkandi sól.

Uppskriftin passar fyrir 4.

Lesa meira...
 
Deildar meiningar um hollustugildi mjólkur

Á þriðjudagskvöldið í síðustu viku, 6. maí, var Jóhanna Vilhjálmsdóttir með góða samantekt á ólíkum sjónarmiðum gagnvart hollustugildi mjólkur, í Kastljósþætti kvöldsins.

Jóhanna ræddi við Laufeyju Steingrímsdóttur prófessor við Landbúnaðarháskólann og við Hallgrím Magnússon lækni. Ég birti hér helstu punktana sem komu fram í þessum viðtölum.

Lesa meira...
 
Sóun Íslendinga

Í Kastljósþætti í vikunni var umfjöllun um könnun sem gerð var um sóun Íslendinga á verðmætum og í hvaða þáttum hún helst liggur. Brynja Þorgeirsdóttir ræddi þar við Einar Már Þórðarsson stjórnmálafræðing sem var einn þeirra sem stóð að þessari rannsókn og Rögnu Halldórsdóttur, starfsmann hjá Sorpu.

Fram kom að Íslendingar henda verðmætum sem þeir hafa ekkert eða lítið sem ekkert notað, fyrir um 13 milljarða á ári. Þetta eru gríðarlega há upphæð og mætti gera sér í hugarlund að almenningur gæti nýtt þessar fjárhæðir á farsælli hátt. Þetta gerir um 50.000 krónur á hvert mannsbarn á landinu.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Endir >>

Úrslit 25 - 32 af 33
Kannanir
Hefur þú breytt neysluvenjum þínum eftir að kreppan skall á?
 
Hver er að skoða?
Það eru 17 gestir á vefsvæðinu
 
Greinar Pistill dagsins Viðtöl Fréttir
Reynslusögur Uppskriftir Fyrirspurnir og ábendingar Vandamál og úrræði
Skráning á þjónustu- og meðferðarsíður

© 2006 Heilsubankinn - Allur réttur áskilinn