Heilsubankinn Miðvikudaginn 26. ágúst, kl. 20.00 Skrá mig
Í beinni · miðvikudaginn 26. ágúst · kl. 20.00

Meiri orka, minni verkir, bættur svefn 3 undirstöður betri heilsu

Ókeypis námskeið í beinni á netinu sem sýnir hvað raunverulega hindrar þig í að líða betur og hvað þú getur gert í því.

SKRÁ MIG – Ókeypis námskeið, 26. ágúst

Tveggja tíma netnámskeið í beinni útsendingu.

Hildur Jónsdóttir situr á bekk í garði umkringd blómum

Kannastu við þetta?

Viðvarandi þreyta sem aldrei hverfur, óútskýranleg einkenni sem safnast upp, niðurstöður úr rannsóknum sem sýna að „ekkert sé að“ og vaxandi tilfinning um að líkaminn þinn einfaldlega láti ekki að stjórn...

Að búa við stöðugar heilsuáskoranir getur líkst því að vera fastur í eigin líkama.

Eins og margir af nemendum mínum—allt frá uppteknu fagfólki til örmagna foreldra, frá þeim sem eru með sjúkdómsgreiningar á bakinu til þeirra sem hafa reynt allt til að ná bata—heldur þú áfram að leita vegna þess að þú veist að það hlýtur að vera eitthvað meira til ráða.

Og þú hefur rétt fyrir þér.

Þér gæti liðið betur, og þú átt það skilið. En fyrst þarftu að skilja hvað líkaminn þinn er að reyna að segja þér.

Ég hef verið nákvæmlega þar sem þú ert núna

Hildur Jónsdóttir

Allt mitt líf hef ég þurft að takast á við mikil heilsufarsvandamál sem hafa stöðugt þróast til verri vegar í gegnum árin. Fyrir örfáum árum síðan var ástand mitt orðið svo slæmt að ég gat eingöngu staðið upprétt í um 2 klukkustundir á dag. Ég var með stöðuga verki, enga orku, svaf illa og þjáðist af langvarandi mígreni.

Ég hef verið að safna á mig sjúkdómsgreiningum allt mitt líf, þ.m.t. er liðagigt, slitgigt, meltingarsjúkdómar, vefjagigt, krónískt mígreni, lágur blóðþrýstingur, skjaldkirtilssjúkdómur og svona má lengi telja. Að auki hef ég lent endurtekið í alvarlegri kulnun og tvisvar var ég skorin við forstigum krabbameins.

Fyrir rúmum 10 árum fékk ég nóg. Ég neitaði að vera fórnarlamb „ólæknandi“ sjúkdóma og sór þess eið að finna leið til að öðlast aftur heilsu mína og líf.

Það tók mig um tvö ár að setja saman prógramm sem byggir á nýjustu rannsóknum. Það gerði mér kleift að losna nær alfarið við öll einkennin sem höfðu stjórnað lífi mínu. Mikilvægast var þó að ég endurheimti fulla orku, losnaði við verki og upplifði á ný það að líða vel í eigin skinni.

Síðan þá hef ég hjálpað yfir 1.000 manns að uppgötva hvað líkami þeirra hefur verið að reyna að segja þeim.

Hvort sem þau komu til mín með langvarandi þreytu, óútskýranlega verki, meltingarvandamál eða bara tilfinningu um að eitthvað væri ekki í lagi, þá hafa mörg þeirra nú losnað við ástandið sem þeim var sagt að þau þyrftu að „lifa bara með.“

Og ég vil það sama fyrir þig.

Í gegnum mína vegferð uppgötvaði ég eitt afar mikilvægt: raunverulegur bati getur aðeins hafist þegar þú skilur hvað líkami þinn er að reyna að segja þér.

Þess vegna bjó ég til þetta fría námskeið: til að leiða þig í gegnum fyrstu skrefin í að skilja merki líkamans, svo þú getir byrjað að færast í átt að betri heilsu.

Í þessu lifandi og gagnvirka námskeiði munt þú skilja af hverju líkami þinn er úr jafnvægi og taka fyrstu skrefin til að endurheimta orkuna, minnka verkina og loksins fá þann svefn sem þú átt skilið.

Þín leið til aukins skilnings byrjar hér

Saman munum við skoða:

  • Hvað gæti raunverulega verið að valda þreytu þinni, verkjum eða óþægindum
  • Hvað þarf að vera fyrir hendi til að koma jafnvægi á svefn, meltingu og úthald
  • Hvaða innsýn vantar mögulega í nálgun læknanna þinna á vandamálum þínum - og hvernig þú getur orðið þinn eiginn heilsufræðingur

Þetta snýst um Orsökina, Afleiðinguna og Lausnina.

Hvað aðrir hafa uppgötvað

Mikill fróðleikur þarna og ég spegla mig í allt of mörgum einkennum sem þú talaðir um. Er spennt að fylgjast með framhaldinu. Finnst þetta mjög áhugavert og held að það ættu allir landsmenn að heyra þetta. Bíð spennt eftir restinni 🥰

Sigrún

Takk kærlega fyrir kvöldið. Það var sannarlega mikið að melta. Það sem kannski stendur upp úr er sú staðreynd hvað líkaminn er stórmerkilegt fyrirbæri. Og hversu miklu við greinilega getum stjórnað bæði til góðs og verri vegar. Takk kærlega. Hlakka til að fræðast meira 💖

Guðrún

Takk fyrir fyrirlesturinn og verkefnið 😁 er byrjuð og sé margt sem ég fattaði ekki að hefði áhrif á líkamlega verki

Svala

Fyrri þátttakendur byrjuðu nákvæmlega þar sem þú ert mögulega núna—pirraðir, ringlaðir og leitandi að raunverulegum svörum.

Skráðu þig og þú færð allt sem þú þarft til að byrja þína vegferð til bættrar heilsu:

  • Gagnvirkur fundur með fyrirlestri, æfingum og tækifæri til að spyrja spurninga
  • Hagnýtar æfingar til að kortleggja einstök heilsumynstur þín
  • Skref-fyrir-skref leiðbeiningar til að skilja hvað líkami þinn raunverulega þarf til að komast til heilsu

Við munum vinna saman að því að skilja hvað líkami þinn er að reyna að segja þér. Ég veit að það er mikið af misvísandi og ruglingslegum upplýsingum um heilsu þarna úti.

Þess vegna snýst þetta námskeið ekki um skyndilausnir, innihaldslítil loforð eða tímabundnar aðferðir. Það snýst um að hjálpa þér að breyta því hvernig þú lítur á og stjórnar heilsu þinni. Þú munt öðlast þekkingu og verkfæri til að taka upplýstar ákvarðanir sem leiða til langvarandi bata.

Þetta námskeið er fyrsta skrefið til að skilja hvað líkami þinn raunverulega þarf. Þú munt fá strax innsýn sem þú getur nýtt þér strax, auk þess að uppgötva hvernig þú getur haldið áfram bataferlinu með dýpri stuðningi ef þú kýst.

Hildur Jónsdóttir brosandi innan um blóm

Skráðu þig — það er ókeypis

Ókeypis námskeið í beinni á netinu sem sýnir hvað raunverulega hindrar þig í að líða betur og hvað þú getur gert í því.

Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

Miðvikudaginn 26. ágúst, kl. 20.00 · Áminning send 1 klukkustund áður