Þú ert að byggja þig upp á ný með reynsluna með þér
Sem fyrri nemandi í Heilsueflingu Hildar færð þú nú einstakt tækifæri til að taka þátt á ný með 50% afslætti af námskeiðsgjaldinu.
Næsta 16 vikna námskeið hefst 7. september, en þú færð fullan aðgang að öllu námskeiðsefninu um leið og þú skráir þig.
Þú getur því byrjað strax að rifja upp fræðsluna, taka stöðuna og undirbúa þig á þínum eigin hraða áður en námskeiðið hefst formlega.
JÁ, ÉG VIL STÍGA AFTUR INNEndurkomutilboðið stendur aðeins til föstudagsins 7. ágúst kl. 21:00.
Það eru margar og ólíkar ástæður fyrir því að fyrri nemendur ákveða að taka þátt aftur.
Kannski náðir þú góðum árangri síðast en finnur að þú þarft að ná aftur utan um þær venjur sem studdu líðan þína.
Kannski hefur álagið aukist, lífið orðið annasamt og heilsan smám saman færst neðar á forgangslistann.
Kannski náðir þú ekki að fara eins vel í gegnum fræðsluna og þú ætlaðir þér eða festa allar breytingarnar í sessi.
Eða kannski hefurðu haldið góðum grunni en finnur að nú sé rétti tíminn til að dýpka skilninginn, fá svör við nýjum spurningum og komast enn lengra.
Heilsan fylgir sjaldnast beinni línu. Lífið heldur áfram að færa okkur verkefni og stundum þurfum við einfaldlega að stilla kúrsinn aftur, rifja upp það sem virkaði og fá stuðning til að koma því aftur inn í daglegt líf.
Þú þarft ekki að hafa misst allt niður til að eiga erindi aftur. Og þú þarft ekki að líta á endurkomuna sem merki um að þér hafi mistekist.
Þegar þú fórst fyrst í gegnum prógrammið var margt mögulega nýtt. Þú varst að læra nýja nálgun, kynnast tengslum ólíkra líkamskerfa og gera breytingar á mataræði og lífsstíl — allt á sama tíma.
Núna kemur þú inn með allt aðra reynslu. Þú hefur meiri skilning á eigin líkama. Þú veist betur hvað reyndist auðvelt, hvar áskoranirnar lágu og hvaða þættir höfðu mest áhrif á líðan þína. Það gerir þér kleift að hlusta á fræðsluna með nýjum eyrum og sjá atriði sem fóru mögulega framhjá þér áður.
Í þetta sinn geturðu:
Þú ert því ekki að kaupa nákvæmlega sömu upplifun aftur. Þú færð nýtt tímabil af fræðslu, leiðsögn, samfélagi og virkum stuðningi — en kemur nú til leiks með meiri reynslu og betri forsendur til að nýta þér allt sem stendur þér til boða.
ÉG VIL HALDA ÁFRAM AÐ BYGGJA MIG UPP
16 vikna skref-fyrir-skref prógramm
Heilsuefling Hildar er heildrænt prógramm þar sem þú lærir að styðja við líkamlega og andlega líðan með næringu, lífsstílsbreytingum og markvissri vinnu með þær undirstöður sem líkaminn þarf á að halda.
Prógrammið snýst ekki eingöngu um að taka út ákveðnar fæðutegundir eða bæta öðrum inn. Við skoðum samspil mataræðis, næringar, meltingar, taugakerfis, streitu, hvíldar og daglegra venja — og hvernig þú getur nýtt þessa þætti til að styðja líkamann á heildrænan hátt.
Þú getur fylgt námskeiðinu frá upphafi með nýja hópnum eða unnið fræðsluna á þínum hraða og lagt sérstaka áherslu á þau atriði sem skipta þig mestu máli núna.
Þú þarft ekki að bíða til 7. september með að taka fyrstu skrefin. Um leið og þú hefur skráð þig færðu fullan aðgang að námskeiðsefninu og getur byrjað að:
Þannig geturðu byrjað á þeim hraða sem hentar þér og komið undirbúin/n inn þegar nýja námskeiðslotan hefst.
Þótt Heilsuefling Hildar sé hópnámskeið er lögð áhersla á að þú fáir rými til að koma með þínar spurningar og fá skýrari sýn á þau næstu skref sem henta þér.
„Ég gef námskeiði Hildar mín bestu meðmæli. Hún útskýrir vel hvers vegna hún ráðleggur manni að gera hlutina og það finnst mér skipta mestu máli. Námskeiðið hefur hjálpað mér að ná betri andlegri og líkamlegri heilsu og hefur kennt mér hvað ég má eða má ekki borða. Það hefur einnig aukið jafnvægi í lífi mínu. Takk fyrir mig!“
— Helga Markúsdóttir, kennari
„Námskeiðið hjá Hildi hjá Heilsubankanum fær 100% meðmæli frá mér. Það er einstaklega vel skipulagt. Við fengum miklar og góðar upplýsingar og ráðleggingar, bæði í gegnum fyrirlestra, Zoom-fundi, Facebook-hóp og spurningapósta. Það er einstaklega vel haldið utan um þátttakendur og einnig gátum við hjálpað hvert öðru inni á lokaða Facebook-hópnum.“
„Ég hafði áður náð góðum árangri á prógramminu og vissi því af eigin reynslu að það virkaði fyrir mig. Eftir mjög krefjandi tímabil hafði ég misst tökin og gömlu einkennin voru smám saman farin að koma aftur. Þegar ég var tilbúin að beina athyglinni aftur að heilsunni skráði ég mig aftur um leið og það bauðst — og sé alls ekki eftir því. Í þetta sinn fann ég fljótt mjög mikinn mun á liðverkjunum, meltingin komst í gott lag og ég fann jákvæðar breytingar á fleiri sviðum en ég hafði upphaflega ætlað mér að vinna með. Ég kom inn með fókus á ákveðin einkenni en áttaði mig aftur á því að þetta snýst um svo miklu meira.“
— Sif Traustadóttir

Þar sem þú hefur áður tekið þátt í Heilsueflingu Hildar færð þú nú 50% afslátt af námskeiðsgjaldinu.
Fullt verð: 186.000 kr.
Sérverð fyrir fyrri nemendur:
93.000 kr.
Þú sparar 93.000 kr.
VELJA EINGREIÐSLUFjórar greiðslur að upphæð
25.575 kr.
Fyrsta greiðsla fer fram við skráningu og síðan þrjár mánaðarlegar greiðslur eftir það.
VELJA GREIÐSLUDREIFINGU+1.000 ánægðir skjólstæðingar
🔒 Greiðsla fer fram á öruggum netþjóni.
50% afslátturinn er eingöngu ætlaður fyrri nemendum í Heilsueflingu Hildar.
Tilboðið rennur út: Föstudaginn 7. ágúst kl. 21:00
Eftir þann tíma verður ekki hægt að skrá sig á þessu sérverði.
JÁ, ÉG VIL KOMA AFTURNæsta námskeið í Heilsueflingu Hildar hefst 7. september. Þú færð þó fullan aðgang að öllu námskeiðsefninu strax við skráningu og getur byrjað að rifja upp fræðsluna um leið og þér hentar.
Nei. Þú getur valið að fylgja öllu námskeiðinu aftur frá upphafi eða einbeita þér sérstaklega að þeim kennslustundum og þáttum sem þú þarft helst að styrkja. Margir njóta þó góðs af því að fara aftur yfir grunninn með þeirri reynslu og þekkingu sem þeir hafa öðlast síðan þeir tóku fyrst þátt eða ef þeir þurfa að endurstilla kerfið frá grunni.
Já, svo sannarlega. Það eru margar ástæður fyrir því að fólk nær ekki að nýta sér námskeið eins vel og það hafði ætlað. Lífið getur orðið annasamt, heilsuleysið tekið mikið pláss eða aðrar aðstæður gert breytingarnar erfiðari. Þú kemur ekki aftur til að sanna að þú getir gert allt fullkomlega. Þú kemur aftur til að fá nýtt tækifæri, skýrari ramma og stuðning við að vinna skrefin á þann hátt sem hentar þér núna.
Það getur vel verið. Þú þarft ekki að hafa fallið langt til baka til að hafa gagn af endurkomunni. Sumir fyrri nemendur vilja styrkja grunninn, dýpka skilninginn, fá svör við nýjum spurningum eða halda áfram að fínstilla það sem þeir eru að gera. Markmiðið þarf ekki alltaf að vera að byrja aftur. Það getur líka verið að byggja áfram upp sterkari stoðir.
Já. Þú getur tekið þátt í hóptímunum, sent inn spurningar og nýtt þér samfélagið óháð því hvort þú fylgir öllum kennslustundum í réttri röð eða vinnur sérstaklega með ákveðna þætti.
Heilsuefling Hildar er hópnámskeið en þátttakendur fá reglulegt tækifæri til að senda inn spurningar og fá leiðsögn í hóptímum.
Ekki gera breytingar á lyfjum án samráðs við lækni eða annað viðeigandi heilbrigðisstarfsfólk. Við mælum ekki með að gera breytingar á lyfjainntöku fyrr en forsendur fyrir lyfjainntökunni eru ekki lengur fyrir hendi. Láttu lækninn vita af þeim breytingum sem þú ert að gera og leitaðu ráðgjafar ef þörf er á að fylgjast með heilsufari eða aðlaga meðferð.
Þú hefur þegar tekið fyrsta skrefið einu sinni. Þú hefur þekkingu og reynslu sem þú hafðir ekki þá. Núna færðu tækifæri til að byggja upp áfram — með fræðsluna, stuðninginn og samfélagið með þér.
Næsta námskeið hefst 7. september en þú getur byrjað að rifja upp efnið strax við skráningu.
50% endurkomutilboðið lokar föstudaginn 7. ágúst kl. 21:00.
TRYGGJA MÉR PLÁSS NÚNAEf þú hefur spurningar um námskeiðið eða hvort endurkoman henti þér, geturðu sent tölvupóst á info@heilsubankinn.is.
Heilsubankinn
Við kaup á námskeiðinu Heilsuefling Hildar samþykkir þú að Hildur Online ehf. lofar ekki né ábyrgist ákveðinn árangur af þeirri fræðslu eða þeim ráðleggingum sem veittar eru í tengslum við námskeiðið. Heilsuefling Hildar veitir fræðslu og upplýsingar sem ætlað er að styðja þátttakendur við lífsstílsbreytingar og vinnu að bættri líðan. Árangur getur verið ólíkur milli einstaklinga og mótast meðal annars af heilsufari, aðstæðum og eigin þátttöku. Allir vitnisburðir eru byggðir á raunverulegri reynslu þátttakenda. Árangur annarra tryggir ekki að þú fáir sömu eða sambærilegar niðurstöður. Námskeiðið kemur ekki í stað læknisþjónustu, greiningar eða meðferðar hjá löggiltu heilbrigðisstarfsfólki.