Skráðu þig – það er ókeypis
Skráðu þig – það er ókeypis
Það er ekki komin dagsetning á næsta námskeið, en ef þú skráir þig á biðlistann, þá sendum við þér skilaboð og þú færð tækifæri á að skrá þig um leið og opnað verður fyrir skráningar.
Staðreyndirnar eru að við búum við stöðugt lakari heilsu, þrátt fyrir að við mokum sífellt meiri peningum í heilbrigðiskerfið.
Við verðum stöðugt þyngri, þreyttari, verkjaðri og veikari.
Heilbrigðiskerfinu okkar gengur illa að meðhöndla króníska kvilla og langvarandi veikindi.
Og við upplifum að við verðum bara að læra að lifa með þessu.....
Við hrjáumst af svo margskonar kvillum um leið og við upplifum að við höfum engar raunverulegar lausnir á heilsuvanda okkar
Kannastu við að hafa sagt eitthvað af eftirfarandi:
➡️ Ég þyngist sama hversu lítið ég set ofan í mig
➡️ Ég léttist ekkert sama hversu mikið ég púla í ræktinni
➡️ Ég er að drepast í bakinu en ég finn enga langtíma lausn
➡️ Ég er með stöðuga verki í hnjánum (eða fingrunum, öxlunum, mjöðmunum.....) en þetta kemur víst bara með aldrinum
➡️ Ég er með bullandi hátt kólesteról og/eða blóðþrýstingurinn er allt of hár, en þetta er jú bara í ættinni
OG
Ert þú mögulega að takast á við eitthvað af eftirfarandi?
Ef tvennt eða fleira af þessu á við þig, þá eru líkamskerfin þín mögulega í ójafnvægi!
Við vitum öll að gott mataræði er mikilvægt fyrir góða heilsu – EN þegar heilsan er farin, þá er því miður ekki nóg að borða bara hollan mat
Það er fleira sem þarf að koma til svo þú færist nær því að lifa við fulla orku, minni verki og betri líðan.
Þú þarft ekki að sætta þig við og læra að lifa með ástandi sem færir þér eintóma vanlíðan.
Hæ, Hildur hér. Fyrir örfáum árum síðan var heilsan mín orðin svo slæm að ég gat eingöngu staðið upprétt í um 2 klukkustundir á dag.
Allt mitt líf hef ég þurft að takast á við mikil heilsufarsvandamál sem hafa stöðugt þróast til verri vegar í gegnum árin. Fyrir örfáum árum síðan var ástand mitt orðið svo slæmt að ég gat eingöngu staðið upprétt í um 2 klukkustundir á dag. Ég var með stöðuga verki, enga orku, svaf illa og þjáðist af langvarandi mígreni.
Ég hef verið að safna á mig sjúkdómsgreiningum allt mitt líf, þ.m.t. er liðagigt, slitgigt, meltingarsjúkdómar, vefjagigt, síþreyta, krónískt mígreni, skjaldkirtilssjúkdómar, hjartsláttaóregla og svona má lengi telja.
Fyrir um 6 árum fékk ég nóg. Ég neitaði að vera fórnarlamb “ólæknandi” sjúkdóma og sór þess eið að finna leið til að öðlast aftur heilsu mína og líf.
Það tók mig um tvö ár að þróa prógramm, byggðu á nýjustu rannsóknum, sem gerði það að verkum að ég losnaði við nær öll einkennin sem höfðu stjórnað lífi mínu fram að því. Ég fékk aftur fulla orku, verkjaleysi og upplifði vellíðan á ný.
Markmið mitt er að aðstoða eins marga og ég get að feta sömu braut og ég hef farið og vonandi hjálpa þeim að ná sambærilegum árangri og ég hef náð.
Það væri frábært að fá þig í hóp þeirra sem vilja vita meira og við getum skoðað hvaða möguleikar eru í stöðunni fyrir þig.
Vertu með á þessu fría vikunámskeiði sem samanstendur m.a. af fjórum fræðsluerindum þar sem þú munt komast að því hvort líkamskerfi þín eru í ójafnvægi og hvað þú getur gert til að leiðrétta það.
Skráðu þig – það er frítt
Ef þú hefur endurtekið upplifað eins og þú standir utan við sjálfa/n þig og vitir ekki hvað þú ert að gera eða hvert þú ert að fara og þú upplifir þig einhvern veginn úr tengslum við sjálfa/n þig
- Þá ættir þú ekki að missa af þessu námskeiði.
Á þessu námskeiði munt þú fræðast um hvernig þú getur bætt líðan þína í fjórum skrefum.
➡️ Fræðslan á námskeiðinu fer fram í formi fyrirlestra og gagnvirkra æfinga sem þú leysir, til að átta þig betur á stöðu þinni og tækifærum.
„Ég mæli alveg hiklaust með þessu námskeiði. Hildur er afar fróð um allt sem kemur að hollustu og næringu fyrir líkama og sál. Einstaklingurinn fær alla þá aðstoð sem hann þarf, þó þetta sé hópnámskeið. Mín bætta heilsa segir allt sem segja þarf.“
- Sigrún Baldvinsdóttir
„Takk kæra Hildur fyrir vel skipulagt, fróðlegt, heilsteypt og heilsubætandi námsskeið. Sýnikennslan var gagnleg, sem og að geta sent þér spurningar og fá skýr svör til baka, jafningjastuðningurinn skipti miklu máli. Takk fyrir hvatningu, stuðning, umhyggju, óendanlega þolinmæði og þitt blíða bros. Gangi þér allt í haginn.
- Svanhvít Vatnsdal Jóhannsdóttir
Á sama hátt og ég, þá getur þú hámarkað orku þína og vellíðan þannig að þú getir látið drauma þína verða að veruleika!
Vertu með mér í þessum beinu útsendingum. Við munum skoða grunnorsakir flestra þeirra vandamála sem þú ert að eiga í með heilsuna og hvaða líkamskerfi þurfi að komast í jafnvægi svo að líkami þinn komist aftur til heilsu.
1. Skrefið – ORSÖKIN
Við tökum stöðuna á heilsunni okkar og skoðum hvenær hlutirnir fóru að þróast til verri vegar, sem var jafnvel mun fyrr en við höfum gert okkur grein fyrir.
Við veltum jafnframt fyrir okkur orsökunum og hvað það var sem leiddi kerfið okkar í ójafnvægi.
2. Skrefið – AFLEIÐINGIN
Nú þegar við áttum okkur betur á orsök heilsuvanda okkar, þá skoðum við hverjar afleiðingarnar mögulega eru og hvernig þróunin getur haldið áfram til verri vegar, ef ekki er gripið inn í með réttum meðulum.
3. Skrefið – LAUSNIN
Þegar við höfum náð að tengja orsök og afleiðingu, þá skoðum við hvaða mögulegu lausnir eru í stöðunni og hvar sé hægt að fá aðstoð.
4. Skrefið – LEIÐIN
Nú þegar við sjáum hvar vandinn liggur, hvar lausnin er og hvað við getum gert í okkar stöðu, erum við þá tilbúin í að taka skrefið? Hvað gæti staðið í veginum fyrir því að við réttum okkur eftir lausninni? Og hvaða von getum við átt á bættri líðan og betra lífi?
➡️ Fræðslan á námskeiðinu fer fram í formi fyrirlestra og gagnvirkra æfinga sem þú leysir, til að átta þig betur á stöðu þinni og tækifærum.
➡️ Þú færð aðgang að lokuðum hópi á Facebook þar sem þú hittir aðra þátttakendur á námskeiðinu. Það er mikill styrkur í að tengjast fólki sem er að vinna að sama marki: að líða betur í eigin skinni.
Ég trúi því að: SKILNINGUR ER FORSENDA ÁRANGURS
Frítt viku námskeið
“Mér hefur ekki liðið eins vel í mörg ár, bæði andlega og líkamlega. Það er eins og ég hafi komist úr úr skel. Liðverkir minni, meltingin betri og minni slímmyndun. Löngun í sykur er horfin. Bónusinn er að ég hef líka lést.“
- Kristín Hálfdánardóttir
“Ég var eins og svampur og dró í mig alla leiðsögnina sem ég hef þarfnast og þráð að fá í ölu mínu heilsuleysi. Fyrsta skipti á æfinni sem ég hef fengið þá tilfinningu að þarna væri svarið sem ég hef leitað svo lengi að. Eins er það mikilvægt að hafa leiðsögn og stuðning þess sem hefur verið í mínum sporum.“
- Anna Rudolfsdóttir
“Ég finn að bólgur i líkamanum eru að minnka og það er frábært, ásamt því að magalyf sem ég er búin að taka í mörg ár þarf ég ekki lengur.“
- Kristbjörg Jónsdóttir
Skjólstæðingar mínir hafa náð stórkostlegum árangri með heilsuna og margir orðið einkennalausir með öllu af sínum sjúkdómum.
Meðal þeirra sjúkdóma sem fólk hefur náð árangri með eru liðagigt, vefjagigt, þvagsýrugigt, síþreyta, hár blóðþrýstingur, há blóðfita, astmi, krónískar sýkingar, iðraólga, crohn's, sáraristilbólga, vanvirkur skjaldkirtill, sykursýki, stoðkerfisvandamál, mígreni, ofþyngd og marga fleiri.
NÚNA ER TÆKIFÆRIÐ á að skoða hvort þessi leið hentar þér.
Hvort hún geti nýst þér og hvort þú ert tilbúin/n að stíga skrefið.
Þú færð jafnframt tækifæri á að sjá hvernig ég vinn og hvernig það er að vinna með mér.
Ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi námskeiðið, sendið þá endilega póst á info@heilsubankinn.is og við munum svara ykkur eins fljótt og auðið er.