Heilsa

Blóðþrýstingur

Efri mörk blóðþrýstings er mjög mikilvægur þáttur þegar reiknuð er hugsanleg dánartíðni einstaklinga með hjartabilanir.

Venjulega eru efri mörkin fyrri talan í mælingu blóðþrýstings, t.d. ef að blóðþrýstingur er skráður 120/80, stendur 120 fyrir efri mörk.

Nú hefur rannsókn sem framkvæmd var í Bandaríkjunum sýnt að hugsanlega eru þessi efri mörk ekki eins góð forspá og haldið var. 

Rannsóknin var gerð á meira en 48.000 einstaklingum með hjartabilun á 259 spítulum víðs vegar um Bandaríkin á tímabilinu frá mars 2003 til desember 2004. Niðurstöður hennar birtust í JAMA, Journal of the American Medical Association, einu stærsta læknariti í heimi.

Reyndust þeir einstaklingar sem að höfðu háa efri markatölu, hafa lægri dánartíðni. Þeir sem að höfðu lægri efri markatölu, voru oftar meira veikir og höfðu þar með minni lífslíkur. Fjórum sinnum meiri líkur voru á dauðsföllum hjá þeim sem að voru lægri en 120 í efri mörkum í samanburði við þá sem að höfðu þrýsting yfir 161 í efri mörkum.

Þessi rannsókn sýnir allt aðra og nýja sýn á blóðþrýstingi. Hingað til hefur verið haldið fram að ef efri mörk færu yfir 120 skildi alvarlega huga að lyfjagjöf til að ná niður blóðþrýstingnum. En eru þessar niðurstöðu réttari en aðrar?

Hvort svo sé eða ekki, er það hvernig við hugsum um okkar heilsu og hvað við gerum til að halda okkar blóðþrýstingi í jafnvægi, það sem að skiptir máli til að halda okkar eigin hjarta heilbrigðu.

Hér eru leiðir til að gera það, svo vel sé, án lyfja:

  • Dragið úr öllu kornfæði og sykurneyslu til að lækka insúlínstuðulinn.
  • Hugið að andlegu jafnvægi og lærið að forðast óþarfa stress.
  • Stundið reglulega hreyfingu.
  • Takið inn D-vítamín og Omega 3.
Previous post

Húðin

Next post

Kjötneysla og ristilkrabbamein

No Comment

Leave a reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *