Greinar um hreyfinguHreyfing

Hreyfing og mataræði

Það var áhugavert að lesa um daginn um rannsókn á hreyfingu barna. Ekki að hún segði mér eitthvað nýtt en gott að sjá þetta svart á hvítu.

Samkvæmt niðurstöðu stórrar rannsóknar sem gerð var í Skotlandi, er aukin hreyfing barna ekki nægjanleg til að vinna bug á offitu. Börnin voru látin í gegnum sérstakt hreyfiprógramm í 30 mínútur, þrisvar í viku í heilt ár í leikskólanum. Að auki fengu foreldrar leiðbeiningar til að örva líkamlega virkni barnanna heima við.

Rannsóknin sýndi að hreyfingin hafði áhrif á hreyfifærni barnanna en engin áhrif á líkamsþyngdina. Þannig að ekki nægir að einblína á hreyfinguna, huga þarf sérstaklega að mataræðinu.

Nýlega hefur verið hleypt af stokkunum sérstöku verkefni hjá menntamálaráðuneytinu sem snýr að aukinni hreyfingu leikskólabarna. Er það vel gagnvart líkamlegri virkni barnanna og andlegri líðan, en varast verður að halda að þetta leysi vandann sem aukin offita meðal barna er.

Ég tel að huga þurfi enn meira en gert hefur verið að mataræði barna í leik- og grunnskólum. Staðan í mötuneytismálum er mjög misjöfn, maturinn sem borinn er fram er einnig mjög misjafn og hægt er að gera miklu betur í áherslum á hollt nesti. Það er algengt að börnin í efri bekkjum séu að fara út af skólalóðum til að versla sér óhollustu á skólatíma og tel ég að auðvelt væri að koma í veg fyrir það ef áhugi væri fyrir því hjá skólastjórnendum.

Í aðalnámskrá grunnskóla segir: ,, Mikla áherslu skal leggja á heilbrigða og holla lífshætti”.

 

Höfundur: Hildur M. Jónsdóttir – greinin birtist fyrst á vefnum í nóvember 2006

Previous post

Mikilvægi hreyfingar

Next post

Viðtal við Hrafnhildi Sigurðardóttur

No Comment

Leave a reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *