HómópatíaMeðferðir

Exem

Exem er bólga í húð sem getur byrjað á hvaða aldri sem er. Húðbólga kemur oft fram eftir að hafa komist í snertingu við eitthvað sem að áreitir húðina, en exem kemur án þess að svo sé, kemur innan frá líkamanum. Skyldleiki er á milli exems og asma, oft hefur sami einstaklingur báða sjúkdóma og/eða saga um báða sjúkdóma eru í fjölskyldusögu.

Exem tekur á sig margar myndir, en algengustu einkenni eru þurrkur og kláði. Húðin er oft rauð, hún þykkist, springur og stundum vessar glær vökvi og litlar blöðrur myndast. Kláðinn getur orðið svo mikill að einstaklingurinn klórar sér til blóðs. Algengustu svæði eru í olnbogabótum og hnésbótum, en getur komið um allan líkamann.

Oft byrjar exem á andliti, kinnum og hársverði, en nær undantekningalaust eru úlnliðir og ökklar, olnboga- og hnésbætur líka með einkenni. Allt uppundir 50% einstaklinga fá asma og heymæði seinna á ævinni. Ef exemið hefur verið mjög mikið eru meiri líkur á að einstaklingur þrói asma.

Mataræði og aukaefni í mat geta einnig verið valdandi þættir. Exem er ættgengt og er því meiri áhætta á exemi hjá barni ef að annað eða báðir foreldrar hafa húðvandamál. Fólk sem vinnur með ertingarefni s.s. ull, bensín, olíu, hreinsilegi, málma, sápur, ýmis spray og gúmmí eru í meiri áhættu fyrir því að þróa exem.

Forðast skal að nota sápur með ilmefnum og að takmarka þvottaefnisnotkun. Nota góð, hrein og fiturík krem, helst ekki krem með auka- og ilmefnum. Calendula krem hefur reynst vel og einnig AD smyrsl, ásamt mörgum öðrum. Gott er að hafa nokkur krem í gangi og skipta u.þ.b. vikulega. Laxerolía útvortis (sjá Fræðsluskjóðu undir Góð ráð við ýmsum kvillum, Húðvandamál) Einnig hefur hrein kókosolía sýnt fram á undraverðan árangur.

Mikilvægt er að taka inn góðar fitusýrur og draga verulega úr sykurneyslu. Hafragrautur er tilvalinn morgunmatur fyrir þá sem að hafa exem. Í haframjöli eru mjög virk efni sem að hjálpa bæði húðinni og meltingunni. Melting og húð eru mjög tengd líffæri og því er nauðsynlegt að hugsa vel um hvað fer ofan í magann til að ná húðinni góðri.

Hómópatía hefur reynst mjög vel í mörgum exemtilfellum, hér að neðan er listi yfir örfáar af þeim allmörgu remedíum sem að oft hafa hjálpað við slík tilfelli, en tekið skal fram að ávallt er heillavænlegast að leita sér aðstoðar hjá reyndum hómópata, til að auka líkur á að rétt remedía sé valin.

Arsenicum: Útbrot eru þurr og skorpukennd, verri frá 12-12, betri við hita, þurr brennandi tilfinning. Hræðist og er verri við að vera einn, er kaldur og kvíðinn,

Graphities: Útbrot eru rök eða lekur úr þeim, hunangslituð útferð. Húð þurr og sprungin. Oft þykkildi aftan við eyru og exem í lófum. Verri við að borða sætan eða kaldan mat og sjávarfang. Verri yfir blæðingar. Betri eftir svefn.

Sulphur: Útbrot eru þurr og flagnandi. Mikill kláði. Roði í kringum munninn. Verða verri við að baða sig,verri við sápu og verri í hita (sérstaklega í rúminu). Verri á morgnana og eftir bað, verri í kulda. Eru betri á sumrin.

Petroleum: Húð er viðkvæm og sprungin. Sýkist auðveldlega ef að klórað er til blóðs. Bruni og kláði. Verri í röku veðri og á veturna. Betri við hita og í þurru veðri.

Hepar: Lekur úr útbrotum, sýking, ofurviðkvæmni, verri við kulda og á morgnana. Betri við hita og heita bakstra.

Silica: Lekur úr útbrotum og sýking. Verri í kulda og vindi. Betri við hita, í heitu veðri.

Calc Carb: Húðin er þvöl, verri við kulda og vind, verri við álag og oft verri við mjólk og mjólkurvörur. Betri við hita og á morgnana. Harðlífi fylgir oft.

Previous post

Breytingaskeiðið og heildrænar meðferðir

Next post

Ennis- og kinnholubólgur

No Comment

Leave a reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *