Súrt og basískt mataræði
Eins og ég sagði frá í greininni um sýrustig líkamans þurfum við að neyta um 80% basískrar fæðu og um 20% súrrar fæðu til að endurheimta eða viðhalda eðlilegu sýrustigi líkamans. Þegar þetta jafnvægi er fyrir hendi er viðnámsþróttur líkamans miklu meiri gegn sjúkdómum og pestum.
Hér að neðan má finna töflu um helstu fæðutegundir í hverjum flokki.
Basískar fæðutegundir. (80% fæðunar) | Súrar fæðutegundir. (20% fæðunar) |
Ávextir Aprikósur Avokadó Bananar, þroskaðir Ber Döðlur Epli Ferskjur Gráfíkjur Greipávextir Kirsuber Mangó Melónur Ólífur, ferskar Perur Rúsínur Sítrónur og lime | Ávextir Bananar, grænir Niðursoðnir ávextir og sultur Plómur Sítrusávextir, líka basískir Sveskjur og sveskjusafi Ólífur og matur í pækli |
Grænmeti Agúrkur Aspargus, þroskaður Baunaspírur Baunir, grænar Blómkál Graslaukur Gulrætur Hvítlaukur Hvítkál Rauðkál Kartöflur Næpur Paprika, grænar og rauðar Radísur Salatblöð Sellerí Sojabaunir Spergilkál Spergill Spínat Sveppir, flestir Söl | Grænmeti Baunir Hnetur Laukur Linsubaunir Rabbarbari Tómatar |
Mjólkurafurdir AB-mjólk Mjólk, ógerilsneidd, beint úr kúnni, 37 gráður Mysa Acidophilus hylki | Mjólkurafurdir Kotasæla Ostur Smjör Ís Mjólk |
Korn Hirsi | Korn Brauð Bökur og sætabrauð Bókhveiti Haframjöl Hveitivörur, allar Hrísgrjón Kleinuhringir Kökur, kex Núðlur Pasta |
Kjöt og fiskur Fiskur, allur Fuglakjöt Kjöt, allt | |
Annað Alfaalfaspírur Agar agar Engifer, þurrkaður Eplaedik Hunang Kornkaffi Möndlur Þari Ýmsar jurtir eins og mynta, rauðsmári, salvía og mate Köld sturta, kærleikur, hlátur, faðmlag, ferskt loft. | Annað Áfengi Edik Egg Kakódrykkir Kaffi Kóladrykkir Krydd Matarolíur Salatsósur Sósur Sultur Hlaup Sælgæti Tóbak Svefnleysi, yfirvinna, áhyggjur, stress, reiði, öfund. |
Unnið upp úr grein á vef Heilsuhvols
No Comment